Bloggfærslur mánaðarins, ágúst 2007
Að skjóta börn
31.8.2007 | 09:08
Að hugsa sér, þrjú börn voru skotin af misgá, herinn hélt þetta væru herská börn!! Hvernig er heimurinn eiginlega? Ég stóð einhvernvegin í þeirri meiningu að það ætti einfaldlega ekki að skjóta börn, jafnvel þó þau séu herská eða ódæl á einhvern hátt.
Ísraelski herinn gerir sig sekan um a.m.k. tvennt í þessu máli. Annars vegar að skjóta saklausa borgara - saklaus börn, og hins vegar að ætla sér að skjóta börn - herská börn. Það má vart á milli sjá hvort vekur hjá manni meiri hrylling.
Ljóð Kristjáns frá Djúpalæk, Slysaskot í Palestínu (Í víngarðinum), lýsir ástandinu á þessum slóðum vel. Þetta er áhrifaríkt og magnað ljóð sem má auðvitað heimfæra á hvern þann stað þar sem stríðsástand ríkir.
Lítil stúlka. Lítil stúlka.
Lítil svarteyg dökkhærð stúlka
liggur skotin.
Dimmrautt blóð í hrokknu hári.
Höfuðkúpan brotin.
Ég er Breti, dagsins djarfi
dáti, suður í Palestínu,
en er kvöldar klökkur, einn,
kútur lítill, mömmusveinn.
Mín synd er stór. Ó, systir mín.
Svarið get ég, feilskot var það.
Eins og hnífur hjartað skar það,
hjarta mitt, ó, systir mín,
fyrirgefðu, fyrirgefðu,
anginn litli, anginn minn.
Ég ætlaði að skjóta hann pabba þinn.
Börn sem Ísraelar skutu unnu ekki fyrir hryðjuverkamenn | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Ég vil, ég vil ekki, ég vil, ég vil ekki....
28.8.2007 | 15:37
Það kom til mín maður og bað mig að taka að sér ákveðið verkefni. Ég svaraði strax NEI. Síðan ræddi ég málin við Gíslínu og dætur mínar og þá urðum við sammála um að það væri rétt að ég tæki að mér verkefnið. Ég setti mig aftur í samband við þennan mann. Nú eru liðnir tveir dagar og ekkert svar fæ ég frá manninum til baka. Þetta er óþolandi framkoma, ekkert kemur mér á óvart í þessu máli lengur.
Er þetta hátterni mitt réttlætanlegt?
Það myndi ég ekki segja. En einhvernvegin svona sýnist manni varaformaður Þórs á Akureyri haga sér skv. frétt Vikudags.
Forsagan er sú að Akureyrabær hefur átt í viðræðum við Þór um uppbyggingu frjálsíþróttaaðstöðu á Þórssvæðinu. Þeim hugmyndum var hafnað á aðalfundi félagsins, en almennur félagsfundur gaf síðan stjórninni umboð til þess að ganga til viðræðna við Akureyrarbæ.
Nú fussar Árni, varaformaður, og sveiar yfir því að bærinn hafi ekki enn svarað beiðni þeirra um viðræður um málið, sem þeir sjálfir höfðu þó áður hafnað.
Það er greinilega erfitt að gera það upp við sig hvort hér eigi að halda eða sleppa.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 18:22 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Bráðum kemur betri tíð með blóm í haga
24.8.2007 | 16:37
Það er vonandi að þessi viðskipti nái fram að ganga. Hver veit nema QPR verði næsta stórveldi í enska boltanum. Það hljómar ljúft í eyrum að heyra þulina tala um "meistaraheppni" eða "það er stórmeistara bragur á QPR núna". Ég sé það alveg fyrir mér þegar bikarinn kemur heim á Loftust Road og ungt fólk flykkist í aðdáendahópinn. Já stórveldistíminn er framundan, það er engin spurning.
Nema að Loftus Road verði breytt í æfingasvæði fyrir formúlubíla. Allt getur gerst.
Liðsstjóri Renault íhugar kauptilboð í QPR | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bakkafjara hin meiri
22.8.2007 | 22:26
Í tíufréttum rúv í kvöld var fjallað um fyrirhugaða Bakkafjöru, sem nú virðist vera besti kosturinn í þeirri stöðu sem upp er komin. Ég ætla mér svo sem ekki að taka afstöðu til þessara mála, enda hef ég takmarkaða þekkingu þar á.
Hins vegar þótti mér athyglisvert viðtalið við landeiganda og ábúanda á Bakka. Það kemur nefninlega í ljós að það hefur ekki nokkur maður talað við hann um málið.
Maður hlítur að spyrja sig að því af hverju hafi aldrei verið talað við þennan ágæta ábúanda. Það er ekki eins og þessi hugmynd hafi verið að fæðast í gær. Ég er ekki að tala um neinar samningaviðræður um verð eða eitthvað svoleiðist, heldur sjálfsagða kurteisi, sem fælist í því að minnast á þær hugmyndir sem í gangi eru. Ætli geti verið að stjórnvöld hafi hugsað sem svo: "Við þurfum ekkert að skipta okkur af þessum Bakkabónda því við tökum bara landið eignarnámi og borgum honum kannski 5 milljónir fyrir".
Svo er fólk að hneykslast á aðgerðarsinnum þegar kemur að samskiptum við stjórnvöld.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Ó Bjössi, lífið er bardús.....
16.8.2007 | 11:27
Það er svolítið spaugilegt að sjá hversu Björn Bjarnason er viðkvæmur gagnvart sjálfum sér. Í pistli á vefsíðu sinnis.l. laugardag er Björn mjög sár útí Eyjamanninn Sigmund:
Í sunnudagsblaði Morgunblaðsins fetar Sigmund í fótspor ruglukollanna á visir.is og gefur ranglega til kynna, að ég vilji takmarka för ungs fólks um miðborg Reykjavíkur. Sigmund er sjálfum sér samkvæmur í rugli sínu. Hann hefur um margra ára skeið látið eins og ég sé að stofna eða hafi stofnað íslenskan her. Gangist menn upp í að hafa rangt fyrir sér, eiga þeir það við sjálfan sig en ekki aðra. Sé einhverjum skemmt, er tilganginum náð.
Sigmund hefur teiknað í Moggan í mörg herrans ár og myndir hans hafa nú ekki alltaf verið heilagur sannleikur, en þar er samt alltaf um einhvern beittan sannleika að ræða, kryddaður með góðum húmor.
Annars er gaman að heimasíðu Björns, það eru ekki allir þingmenn eða ráðherrar sem gefa jafn opinskátt upp hvað þeir eru að hugsa í tengslum við hin ólíkustu mál.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Allt gengur upp hjá Magnúsi Kristinssyni!!!
15.8.2007 | 14:49
Í kvöldfréttum Stöðvar 2 í gærkvöldi var sagt frá komu Bergeyjar VE 544 til Eyja. Í kjölfarið var viðtal við Magga Kristins, sem á útgerðina Berg-Huginn (og reyndar Toyotu og fleira). Maggi var spurður hvort þetta myndi allt saman ganga upp í ljósi kvótaskerðingarinnar og Maggi svaraði: "Það gengur allt upp sem ég geri".
Þetta svar lýsir skemmtilegum töffaraskap og auðvitað ákveðnum húmor líka.
Ég átti töluverð samskipti við Magga þegar ég kom hingað til Eyja, þar sem hann var formaður sóknarnefndar. Þau samskipti voru alltaf góð, enda maðurinn einstaklega röskur og laus við allt "bullshitt". Málin voru afgreidd og gengið hreint til verks með skjótum og öruggum hætti. Þetta gekk að sjálfsögðu upp!!!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Þríburar
15.8.2007 | 12:15
Félagi minn og fóstbróðir, Hilmar, er orðinn pabbi í annað sinn. Það munar þá ekkert um það þegar slíkt gerist, það fæddust þríburar, tvær stelpur og einn strákur. Mig langar til að óska þeim Hilmari og Thelmu til hamingju, og auðvitað stóra-stóra-stóra bróður, Guðjóni Valberg líka.
Ég segi nú ekki annað en að það er meira en að segja það að eignast þríbura. Þrennt af öllu og síðan verður að huga að bílakaupum, nánast rútu í fullri stærð. Ég veit reyndar að þau koma til með að standa sig vel, en það er nokkuð ljóst að það verður í nógu að snúast. Það er ekki eins og bændur geti tekið sér fæðingarorlof og farið í frí frá búinu.
Núna eru litlu stubbarnir á vökudeild í Reykjavík, fjarri heimahögunum, og heilsast bara vel.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Hvar eru fréttir úr 1. deild á Syn2?
14.8.2007 | 12:10
Ég er einn af þeim sem keypti mér áskrift af Syn2. Það sem ég var ákaflega spenntur fyrir var að fá fréttir úr ensku 1. deildinni með í þessum pakka. Auðvitað hef ég gaman af ensku úrvalsdeildinni og á þar mitt uppáhaldslið, Newcastle, en mitt enska fótboltahjarta slær samt í London hjá QPR. Þess vegna sakna ég þess að enn hafi ekki verið gerð góð grein fyrir 1. deildinni á Syn2 og kalla hér með eftir aukinni umfjöllun eins og lofað var.
Stóru tíðindin úr 1. deildinni eru að QPR gerði jafntefli í sínum fyrsta leik við Bristol City á útivelli. En mér sýnist að það geti orðið spennandi að fylgjast með Coventry og Ipswich, en bæði lið unnu stórt í fyrstu umferð. Niðurlægingaskeið Southampton virðist ætla að halda áfram, miðað við stórtap á heimavelli.
Ef ég horfi alveg raunhæft á stöðuna þá sýnist mér sem svo að mínir menn muni ekki komast upp á meðal þeirra bestu að þessu sinni, enda verða þeir einfaldlega að hafa breiðari og betri hóp til þess að ætla sér einhverjar rósir í þeim málum. Ég vonast samt til þess að þeir lendi ofan við miðju.
Til hamingju Eyjamenn!!
14.8.2007 | 00:41
Það er svo sannarlega gaman að taka á móti nýju skipi hér í Eyjum. Það er engan bilbug að finna á mönnum hér þrátt fyrir kvótaskerðingu. Ég er nú reyndar ekki að halda því fram að skerðingin komi ekkert niður á Eyjamönnum, því það gerir hún vissulega eins og hjá svo mörgum öðrum, hringinn í kringum landið.
Bergey er fimmta skipið sem ég kem að með blessun og önnur nýsmíðin, hitt var Vestmannaey. Það er alltaf mikil hátíðarstemming í bænum þegar annað hvort nýtt skip kemur, hvort sem er eftir breytingar, nýsmíði eða ný kaup.
Ég óska útgerð Bergs-Hugins til hamingju, sem og áhöfn Bergeyjar.
Svo styttist í fleir skip hér í Eyjum.
Mikill fjöldi tók á móti Bergey VE | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Ó ljúfa veröld
9.8.2007 | 21:37
Ég er alinn upp við það viðhorf að Vilmundur Gylfason, heitinn, hafi verið kyndilberi réttlætisins í íslensku samfélagi. Ég las ljóðin hans, sem eru full af trega og sársauka og höfðu þau mikil áhrif á mig, og hafa enn þann dag í dag.
Þetta er eitt af mínum uppáhalds ljóðum. Datt í hug að skrifa það hér niður eftir gloppóttu minni mínu. Ef einhver man þetta betur, þá látið vita.
Ó ljúfa veröld veistu það
að vindar lífsins blása að
og börnin litlu bjóða góðar nætur.
Og veistu meira veröld mín
að vonin hverfur inn til þín
en fyrir utan ungur maður grætur.
Í leit að því sem liðið er
þá lifnar dauðinn fyrir mér
í dögun þá er dagurinn minn að falla.
En ó hve mig langar að líkjast því
sem lifir og deyr, en vaknar á ný
Í eyðimörk lífsins er angandi blómstur að kalla.
Ljóð | Breytt 10.8.2007 kl. 15:56 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)