Messuþrenna.
9.12.2007 | 21:41
Í dag náði ég þrennu!!! Ég byrjaði á barnamessu í morgun kl. 11.00, síðan prédikaði ég við guðsþjónustu kl. 14.00 og loks sá ég um poppmessu kl. 20.00 þar sem hljómsveitin Tríkót spilaði. (Tríkót er vestmanneyska og þýðir íþróttagalli). Á milli messa fór ég á fimleikasýningu hjá fimleikafélaginu Rán, þar sem dóttir mín Mía Rán sýndi ásamt mörgum öðrum listir sínar.
Á morgun byrjar síðan kirkjuheimsóknatörnin fyrir jólin, þar sem leikskólarnir og grunnskólarnir koma í heimsókn til okkar í kirkjuna. Vonandi að blessuð börnin verði ekki fyrir miklum skaða af þessum kirkjuheimsóknum.
Næsta föstudag ætla ég síðan að bruna norður og skíra þríbura, sem vinur minn Hilmar og "næstum því konan hans", Thelma eiga. Það er þó nokkuð tilhlökkunarefni, enda ekki á hverjum degi sem maður fær að skíra þríbura. Á laugardaginn förum við hjónin síðan í fertugsafmæli til Gunnu "mágkonu", og svo kem ég aftur til Eyja á sunnudaginn til að ná jólatónleikum kirkjukórs Landakirkju þar sem hún Diddu mun syngja einsöng á samt heimakonunni Helgu.
***
QPR náði sér ekki af botni deildarinnar í gær, nú verða menn að fara girða sig í brók. Það lítur allt út fyrir að illa geti farið í vor ef fram heldur sem horfir.
Meginflokkur: Bloggar | Aukaflokkar: Enski boltinn, Trúmál og siðferði | Facebook
Athugasemdir
Góður pistil hjá þér Guðmundur Örn og minnast á þessa fáranlegu umræðu að börnin skaðist af kristnidóminum !
Jóhann Helgason, 9.12.2007 kl. 23:21
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.