Styðja íslensk stjórnvöld mannréttindabrot í Kína?

Mér er spurn hvort einhverntíman hafi komið fram afsökunarbeiðni frá íslenskum stjórnvöldum í þessu máli?  Þær aðgerðir sem gripið var til gagnvart Falun Gong-liðum voru með hreinum ólíkindum, og í raun til háborinnar skammar.

Við hjónaleysin tókum þátt, bæði í mótmælunum þegar forseti Kínverska þingsins kom til landsins og eins þegar forsetinn kom.  Það var ótrúlegt að upplifa æsinginn og vanstillinguna hjá íslenskum stjórnvöldum í kringum þessar heimsóknir.  Þessum háu herrum skyldi hlíft við allri gagnrýni, sama hvað tautaði og raulaði, og nánast með hvaða meðulum.  Þrátt fyrir að öll heimsbyggðin hafi vitað og viti af þeim mannréttindabrotum sem eiga sér stað í heimalandi þeirra.  Staðan í Tíbet er síðan heill pakki þessu viðbótar, þar sem allar gagnrýniraddir eru brotnar á bak aftur með miklu harðræði.

Ég held að stjórnvöld ættu að sjá sóma sinn í því að ganga að kröfum Falun Gong og reyna að ljúka þessu máli sem annars er mikill smánarblettur á sögu lands og þjóðar.

Kannski er borin von að gengið verði að þessum kröfum, því nú á að herja á markaði í Kína með íslensk viðskipti - Hin íslenska Húnainnrás í austri.  Þá er auðvitað mikilvægt að styggja ekki kínversk stjórnvöld.  Þegar öllu er á botninn hvolft, þá eru það peningarnir, eða vonin um fjárhagslegan gróða íslenskra fyrirtækja og fjármálastofnana sem öllu máli skipta - Skipta meira máli en eitthvert kjaftæði um mannréttindi "nokkurra" Kínverja.


mbl.is Falun Gong hvetur stjórnvöld til að greiða bætur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðrún Magnea Helgadóttir

Í júlí 2002 þegar Samfylkingarmaðurinn Lúðvík Bergvinsson,virtist berjast fyrir mannréttindum hérna á landinu bláa þá hringdi ég í hann og sagði honum að annað mannréttindabrot og öllu alvarlegra hefði verið framið. Í framhaldinu hitti ég Lúðvík á skrifstofu hans í Austurstrætinu og rakri fyrir honum tvö sakamál og yfirhylmingu kerfisins á þeim. Lúðvíki varð ómótt og opnaði gluggann á skrifstofunni og sagðist haf samband við mig síðar... Þetta síðar er ekki ennþá upprunnið núna 5 árum seinna. Ég tók þann pól í hæðina eftir að hafa hitt tvo Alþingismenn að skrifa bréf til allra Alþingismanna, alls 74 einstaklinga en hlaut ekki árangur sem erfiði... Þá í framhaldinu setti ég bréfið á heimasíðu því að mér finnst sannleikurinn vera jafnhár ómenguðu vatni... Mannkynið lifir ekki án hvoru tveggja...Slóðin á bréfinu er: http://mal214.googlepages.com

Guðrún Magnea Helgadóttir, 12.6.2007 kl. 16:46

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband