Ég kann ensku!
7.6.2007 | 23:16
Ég og Mía, eldri dóttir mín (sem er 4, alveg ađ verđa 5) lágum inní rúmi í kvöld og hlustuđum á gamla spólu međ Mini Pops frá árinu 1982. Ţar sem Mía liggur á koddanum og raular međ erlendum lögunum á "bullensku", ţá segir hún viđ mig: "Pabbi eru ţau ađ syngja á ensku?" "Já" segi ég. Ţá svarar hún: "Heyrđu pabbi, ţá kann ég ensku." Síđan hélt hún áfram ađ syngja sig í svefn.
Á ţessari Mini Pops spólu er syrpa af lögum sem hinir geđţekku drengir í Village People sungu í denn. Ég man ađ viđ sungum lagiđ Go West, međ VP, á árshátíđ á Stórutjörnum, og ég var indíáninn í hópnum, sem var hiđ besta mál fyrir utan ţađ ađ ég var nýrisinn uppúr hlaupabólu og var skelfilegur á ađ líta, ţar sem ég stóđ ber ađ ofan međ indíánafjađrirna, allur í dílum og doppum eftir veikindin. Vildi ađ ég hefđi veriđ leđurhomminn.
P.S. Rakst á stórgóđa heimasíđu Village People. Um ađ gera ađ hćkka allt í botn og njóta.
Athugasemdir
Ég man eftir ţessari árshátíđ.....ég var ásamt Elvu, Hönnu Karls og Antoni í Boney M!!! ....og ég get svo svariđ ţađ ađ ég man líka eftir hlaupabólufaraldrinum....
Skemmtilegt blogg Örri
Sigga Júlla (IP-tala skráđ) 15.6.2007 kl. 14:48
Ég man ađ Anton hoppađi allan tíman á annari löpinni og stóđ sig vel í ţví. Öll svartmáluđ í framan og flott.
Guđmundur Örn Jónsson, 16.6.2007 kl. 18:11
Hvernig vćri ađ árgangar ykkar fćru ađ hittast og rifja upp gamlar endurminningar.
mamma
mamma (IP-tala skráđ) 17.6.2007 kl. 14:22
Bćta viđ athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.