Hugsað til baka
23.3.2007 | 12:40
Sat hér í þönkum mínum í hádeginu og var að velta því fyrir mér hvað gamlir skólafélagr frá Stórutjörnum eru að gera í dag. Ég hef aðeins verið að velta þessu fyrir mér síðan við Gíslína fórum norður á jarðarför sr. Péturs í Laufási, því í erfidrykkjunni hitti ég mörg minna gömlu skólasystkyna.
Það er óhætt að segja að gamlir vinir og félagar hafa farið í ólíkar áttir. Nokkrir eru bændur, þó alls ekki margir miðað við það að þegar við vorum "sperlar"* þá ætluðum við allir að verða bændur. Í þessum hópi eru vélstjórar, sálfræðingur, smiðir, tamningamaður, verkfræðingur, garðyrkjufræðingur, tölvuséní, framkvæmdastóri og fleira.
Það merkilega við þessa upprifjun er hvað það eru sorglega margir af gömlum bekkjar-og skólafélögum sem ég hef enga hugmynd um hvað eru að gera í dag, og hef jafnvel ekki hugmynd um hvar eru staðsett í heiminum. Ég veit þó að allnokkrir ala manninn í danaveldi og ein í Bandaríkjunum.
Það er merkilegt að hugsa til þess að þetta er fólk sem maður var í miklu samneyti við í mörg ár, jafnvel allan sólarhringinn, því ég var í heimavist frá 9 ára aldri og til loka grunnskólagöngu, skuli svona algjörlega hverfa - gufa upp úr lífi manns. Einhvernveginn hélt maður að það myndi aldrei fenna yfir sporin, en svo vaknar maður upp við að maður veit ekkert um margt af þessu fólki.
*sperlar = Á Stórutjörnum var alltaf talað um litlu krakkana í skólanum sem sperla.
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.