Pönk og prédikanir
26.1.2008 | 10:32
Heiðar Ingi frændi minn og fóstbróðir var fertugur 18 janúar. Að því tilefni hélt hann afmælisveislu, sem var með nokkuð öðru sniði en venja er. Haldnir voru pönktónleikar í Laugarneskirkju, þar sem Blái hnefinn frá Akureyra pönkaði, og pönksveit afmælisbarnsins lék nokkur vel valin lög sem eru í uppáhaldi hjá honum Heiðari. Annað slagið voru gestasöngvara fengnir til að pönkast aðeins líka.
Heiðar fékk mig til að flytja aðra af tveim prédikunum kvöldsins, hina flutti sr. Bjarni Karlsson. Ég læt prédikun mína fylgja hér með, sem var nú reyndar venju fremur persónuleg, enda tilefnið nokkuð annað en hefðbundin sunnudagsguðsþjónusta.
Nú er prédikunin komin "óklippt" á síðuna. Njótið heil!
Kæri söfnuður, kæra afmælisbarn: Gleðilegt nýtt ár, og til hamingju með afmælið, árin 40.
Þegar afmælisbarnið hafði samband við mig og spurði hvort ég væri tilbúin að prédika í afmælinu, þá var ég ekki lengi að slá til, enda átti ég hreint ágæta prédikun í pokahorninu sem var alveg ónotuð, a,m.k. ágæta grunnhugmynd.Svipað og ágætur frændi minn, sem starfaði sem prestur og þegar kom að jólaprédikun þá átti hann ágætis prédikun á lager sem aldrei hafði verið flutt um haustið, vegna messufalls í ótíð. Prédikunin byrjaði svona: Kæri söfnuður, nú eru jólin og þið vitið nú allt um þau. Síðan vatt hann sér yfir í efni hinnar ónotuðu haustprédikunar þar sem hann tók haustannir sveitamanna föstum tökum og fjallaði að mestu um göngur, réttir og sláturtíð.
Það er sem ég segi það er óþarfi að láta góða prédikun ónotaða, ekki síst ef menn hafa lagt einhverja vinnu í hana.
Enn eitt árið hefur runnið sitt skeið og nýtt ár er gengið í garð. Það kemur manni alltaf einhvernvegin á óvart þegar nýtt ártal kemur í ljós. Við tekur klassískur ruglingur á ártölum frameftir nýju ári og svo loks þegar nýtt ár er einhvernvegin orðin hluti af manni sjálfum, þá kemur enn eitt árið. Það er það sama sem gerist hjá manni þegar afmælisdögunum fjölgar, maður þarf ævinlega að hugsa sig tvisvar um þegar maður er spurður um aldur.
----
Það er ekki málið hvað maður getur, heldur hvað maður gerir, segir í hinu ódauðlega lagi Tilfinning sem Purrkurk pillnikk flutti fyrir margt löngu. Segja má að þessi orð hafa fylgt mér nánast allt lífið. Það er nefnilega ótrúlegur sannleikur í þessum orðum sem hægt er að heimfæra uppá svo marga hluti. Þessi orð krefja mann eiginlega um afstöðu, eða þá afstöðuleysi, sem er þá alveg sérstök afstaða út af fyrir sig.
Einn af þeim mörgu mögnuðu ritningartextum biblíunnar, þar sem skýr afstaða til Guðs og fylgis við hann er tekin, er að finna í Jobsbók. En í Jobsbók segir frá samskiptum Jobs við Guð, þarna kemur líka inn hið fræga veðmál sem átti sér stað á stað á himnum á milli Guðs og gamla bakarans, eins og Lúther kallaði djöfulinn. Jobsbók er raunasaga þess sem allt missir, en sættist að lokum við Guð og allt fer á betri veg. Það er ekki nokkur vafi á því að allir geta fundið eitthvað einhversstaðar í Jobsbók sem þeir geta samsamað sig við, hvort sem það er í ræðum Jobs eða vina hans.
Glíman við Guð, lífið og ekki síst glíman við okkur sjálf getur oft á tíðum verið nokkuð erfið, ekki síst ef við ætlum okkur að geraalla hluti sjálf án nokkurrar aðstoðar frá öðru fólki, og hvað þá án aðstoðar frá Guði.
Það er einmitt í þessu ljósi, - ljósi þessarar baráttu sem Job stóð í og sem við öll stöndum í, sem er svo gaman að sjá Heiðar Inga á þeim stað í lífinu sem hann nú er á, og kannski kann einhverjum líka að þykja undarlegt að sjá mig á þeim stað sem ég er á í dag.
Staðan er óneitanlega svolítið ólík því sem áður var, þegar við frændur stóðum í allnokkrum flísalögnum þegar ég kom suður og eins þegar hann kom norður.
Fyrir þá sem ekki vita þá voru flísalagnir háþróað dulmál sem notað var í ákveðnum efnaviðskiptum á sínum tíma. Að sjálfsögðu vorum við sannfærðir um að enginn skildi þetta magnaða dulmál. En fyrir þá sem eitthvað þekktu til okkar þá hefur það nú hljómaði heldur undarlega að tveir menn með tíu þumalfingur stæðu í jafnmikilli flísalagningu og gefið var í skyn.
Hér áður fyrr vorum við að sjálfsögðu sannfærðir um að við gætum allt sem við gerðum og gerðum allt sem við gætum. En það er með þetta eins og svo margt, þegar menn fara fram úr sjálfum sér að þá er það auðvitað býsna margt sem fólk veit ekki að það getur og annað sem það heldur að það geti, en getur alls ekki.
Það er svo undarlegt með það að við frændur höfum svo oft verið á svipuðum stað í lífinu, og eins og títt er um yngri fóstbræður, þá leit ég, og lít reyndar enn, allnokkuð upp til Heiðars.
Það var t.d. Heiðar sem kenndi mér að meta pönk. Ég man eins og gerst hafi í gær þegar ég heyrði pönk fyrst inní herbergi hjá honum heima á Illugastöðum. Það liggur við að manni vökni um hvarma þegar maður hugsar til þessarar stundar.
Ég fékk að vera inní herbergi hjá stóra frændanum, sem vissi allt og gat allt. Og saman hlustuðum við á þá mögnuðustu tóna sem ég hafði á minni stuttu ævi heyrt. Og kveðskapurinn var heldur ekkert slor.
Ég leyfi mér að bregða upp nokkrum áhrifaríkum myndum af þeim kveðskap sem fluttur var þarna í herberginu í sveitinni forðum, og feta þar með í fótspor frænda þegar hann veislustjórnaði brúðkaupi útí Eyjum nú á haustdögum:
Byrjum á nokkrum línum úr hinu ódauðlega lagi Augun úti með Purrkinum
Það er stórkostlegt
alveg meiriháttar
Liggur í augum úti
Það er meiriháttar
það liggur í augum úti
Það er frábært
Það er stórkostlegt
alveg meiriháttar, alveg hreint sjúkt!!!
Í niðurlaginu á Gleði, í flutningi sömu sveitar segir síðan:
Það er svo gaman
En svo kemst ekki í vinnuna fyrr en á
fyrr en á mánudaginn
mánudaginn
Í þessum ljóðlínum endurspeglast gleðin yfir lífinu, gleðin yfir hinu hversdagslega, eins og að mæta til vinnu á mánudegi. Já, hér er sannleikurinn fundinn, hér stendur hann nakinn fyrir framan mann. Ef til vill hefur sannleikurinn verið höndlaður í þessum orðum, orðin höndluð af sannleikanum eða sannleikurinn í orðunum höndlaður af sannleikanum, án þess að ég ætli að hætta mér að svo stöddu frekar útí þá háguðfræðilegu umræðu sem tekur á höndlun sannleikans.
Sannleikur málsins er hins vegar sá að líf Heiðars í dag er nokkuð ólíkt því sem áður var, ef til vill mætti segja að lífið í dag sé alveg meirihátta, og jafnvel alveg hreint sjúkt. Það liggur alveg í augum úti. Fullt hús af börnum, yndisleg kona, heimili sem er uppfullt af kærleika og ást og svo auðvitað rúsínan í pylsuendanum: Líf sem er grundvallað á trú á algóðan Guð.
Líf með Guði hefur alltaf staðið til boða, - í þeim málum hafa dyrnar aldrei verið lokaðar.
-----
Í lífinu almennt höfum við heilmarga valkosti, við erum ekki leiksoppur örlaganna þar sem við siglum stjórnlaust að feigðarósi, ó nei. Við höfum val um svo margt. En þar með er ekki sagt að við framkvæmum allt það sem við getum, enda er í raun lítið gert með það sem við getum ef við fylgjum því ekki eftir með einhverskonar framkvæmd.
Lokaorð Jobs í glímu sinni við Guð eru ef til vill orð sem Heiðar Ingi, og svo margir kannast við, í glímunni við lífið og í glímu sinni við Guð, þar sem hann hefur oftar en ekki fengið að heyra það: Ég þekkti þig af afspurn, en nú hefir auga mitt litið þig! Fyrir því tek ég orð mín aftur og iðrast í dufti og ösku.
Og þá kemur eiginleg spurningin sem hollt er að velta fyrir sér: Fyrir hvað viljum við að þetta ár standi í lífi okkar? Fyrir hvað munu næstu 40 ár í lífi þínu, Heiðar, standa? Leiðin er opin, en það er okkar að taka af skarið og ákveða hvort það verði Guð sem vísa mun veginn og leiða okkur áfram. Það er nefnilega ekki málið hvað maður getur heldur hvað maður gerir.
Og að lokum:
Pönkið lifir, ef algóður Guð lofar.
Amen.
Meginflokkur: Bloggar | Aukaflokkar: Menning og listir, Tónlist, Trúmál og siðferði | Breytt 4.2.2008 kl. 11:36 | Facebook
Athugasemdir
Amen!
Sigga Júlla (IP-tala skráð) 30.1.2008 kl. 10:02
Takk fyrir þennan ljómandi texta úr því maður missti af fjörinu. Purrkur pillnikk klikkar ekki. Bestu kveðjur,
Hlynur Hallsson, 1.2.2008 kl. 20:18
Þetta var alveg hreint frábær skemmtun, og gaman að hafa þessa stórgóðu predikun á prenti. Takk fyrir mig.
Þarfagreinir, 2.2.2008 kl. 14:15
Sæll kæri frændi og fóstbróðir.
Það er samdóma álit veislugesta að þú hafir slegið rækilega í gegn með þessari predikun og ekki síður með söngnum. Það er ekki öllum gefið að vera fyndin, gásgafullur, alvarlegurm, heiðarlegur, óvæntur og sannur í senn. En það tókst þér með þessari predikun.
Þetta kvöld mun í mínum huga lifa lengi og til að hjálpa til við að viðhalda þeirri minningu þá eru hér nokkur myndbönd með lögum sem að við Trúboðarnir spiluðum:
http://uk.youtube.com/watch?v=DICbBpNJURg RUDOLF http://uk.youtube.com/watch?v=aCdcVA56hgo VANTRUBOD http://uk.youtube.com/watch?v=zsa9P6i-Qbs ALKOHOLISTINN http://uk.youtube.com/watch?v=971dE4aDfUg WHERE IS MY MIND
Kv.
Heiðar Ingi
Heiðar Ingi (IP-tala skráð) 3.2.2008 kl. 15:23
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.