Tralla-lalla-la Vialli-lilli-li
3.10.2007 | 14:33
Það væri auðvitað all nokkur klassi yfir því að fá Vialli til að stjórna mínum mönnum. Ég vona bara að hann falli í þá grifju sem Gullit féll í með Newcastle á sínum tíma: að spila sexí football.
Vialli í viðræðum við QPR | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Meginflokkur: Bloggar | Aukaflokkur: Enski boltinn | Facebook
Athugasemdir
Er þetta ekki gömul Chelsea stjarna? Gæti hugsanlega gert eitthvað úr þessum efnilegu leikmönnum sem annars eru alltaf seldir í burtu! Annars held ég að þið þurfið enskan stjóra til að byggja upp hjá ykkur, Sammy Lee verður á lausu fljótlega!!!!!!
hlynur (IP-tala skráð) 4.10.2007 kl. 00:53
Ég held sveim mér þá að ég segi pass við Sammy Lee. Hann var ágætur inná vellinum, en ég er ekki eins sannfærður um getu hans til að stjórna. Annars segi ég það og skrifa að QPR þarf á varnasinnuðum, skipulögðum hörkunagla að halda sem stjóra hjá sér. Og hverjir koma þar til greina?
Guðmundur Örn Jónsson, 4.10.2007 kl. 09:04
Ég held að rétti maðurinn í þetta verkefni sé Sir Bobby Robson
Guðmundur Arnar Guðmundsson, 4.10.2007 kl. 09:36
Þar hittirðu naglann á höfuðið frændi. En manni sýnist sem svo að það sé bara fjarlægur draumur, þetta er kannski svipað og að ætla sér að fá Guðjón Þórðarson að þjálfa U.m.f. Bjarma. Kannski væri hann fínn þar
Guðmundur Örn Jónsson, 4.10.2007 kl. 12:27
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.