Meistari Megas og framhald á bljúgri bćn
25.6.2007 | 00:56
Nú hefđi veriđ gaman ađ eiga heimangengt og skella sér á tónleika međ meistaranum. Ég hef veriđ ađdáandi Megasar lengur en ég man, fékk áhugann í vöggugjöf, ef svo má segja. Ég man ađ Gamli sorry Gráni var hafđur í hávegum heima hjá afa og ömmu. Ţá fannst mér nú eins og ömmu ţćtti hann bara ágćtur, allavega ţarna fyrst, en nú erum viđ afa einlćgi ađdáendur, og reyndar eldri stelpan mín líka.
Ég hef ekki tölu á öllum ţeim tónleikum sem ég hef sótt međ meistaranum, en ţeir eru mjööög margir, og alltaf jafn gaman og hressandi ađ skella sér. En ég hafđi öđrum hnöppum ađ hneppa um helgina en ađ flandrast til Reykjavíkur á tónleika.
Um helgina var ég nefninlega ađ jarđsyngja heiđursmanninn Hjörleif Guđnason, Hjölla múr, á laugardaginn. Ţađ var mér bćđi ljúft og skylt, enda ţótti mér vćnt um Hjölla. Ég kynntist honum nánast um leiđ og ég flutti til Eyja, en ţá var hann búinn ađ vera á sjúkrahúsinu í ţónokkurn tíma. Líklega hefur honum fundist ég eitthvađ umkomulaus, ţví hann tók mig eiginlega strax ađ sér og sagđist vita hversu erfitt ţađ gćti veriđ ađ koma ókunnugur í nýjan stađ. En nálćgt Hjölla fannst manni aldrei ađ mađur vćri á ókunnum stađ, manni leiđ alltaf vel í návistum viđ hann, enda gaf hann mikiđ af sér.
Í útförinni var "Í bljúgri bćn" flutt, sem er mér ákaflega kćrt eins og svo mörgum, en međ nýjum texta. Megas söng einmitt "Í bljúgri bćn" einu sinni á tónleikum sem síđan voru sýndir á Sjónvarpinu, og ţađ ćtlađi allt um koll ađ keyra og margir hneyksluđust fyrir hönd Péturs í Laufási. Hins vegar var Pétur ekki hneykslađur, enda hafđi Megas fengiđ leyfi hans til flutningsins. Ţótti fluttningur Megasar á laginu fínn, mikil tilfinning og innlifun. Textinn sem fluttur var í útförinni um helgina var kveđja frá Ingu, konu Hjölla. Lćt ţennan fallega texta fylgja međ.
Í bljúgri bćn og ţökk til ţín
ég ţakka ţér, ó ástin mín.
Fyrir öll ţau ár er gafstu mér
mín gćfa var ađ kynnast ţér.
Viđ gengum saman lífsins leiđ
sú leiđ var ekki alltaf greiđ.
Ţó 60 ár séu liđin nú
ţú ennţá átt mína ást og trú.
Nú ertu horfin ástin mín
já, mikiđ mun ég sakna ţín.
Ţví biđ ég Guđ ađ geyma ţig
uns ţú á ný, umvefur mig.
Góđ stemmning á tónleikum Hjálma og Megasar | |
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt |
Athugasemdir
snilldin einar
Steingrímur Rúnar Guđmundsson, 25.6.2007 kl. 10:04
Bćta viđ athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.