Ég er ekki (Guðmundur) (Örn) (Jónsson)
9.5.2007 | 16:09
Ég vil taka það skýrt fram að ég er Guðmundur Örn Jónsson.
Ég er EKKI Guðmundur JÓNSSON - kenndur við Byrgið
Ég er EKKI Guðmundur Örn RAGNARSSON - forstöðumaður samfélags trúaðra
Þótti rétt að koma þessu á framfæri áður en ofsóknir á hendur mér byrja. Hér er semsé um fyrirbyggjandi aðgerð að ræða, það er aldrei of varlega farið.
Athugasemdir
Þú ert nú ansi margt ef þetta er það eina sem þú ert ekki.
Pétur Björgvin, 9.5.2007 kl. 16:43
Mér finnst það gott að vekja athygli á þessu, það er hægt að lenda í ýmsum ruglingnum á þessum síðustu og verstu . Eins og þú bendir svo réttilega á .... það er svo sannarlega aldrei of varlega farið!! Með baráttukveðjum úr Árbænum! Sunna Dóra. p.s. Áfram Fylkir!
Sunna Dóra Möller, 9.5.2007 kl. 16:54
Hverjum datt svo sem í hug að þú værir annar en þú ert? Myndin sem þú ert með í höfundarreitnum segir alla þá sögu sem segja þarf. Ég myndi ekki hafa neinar áhyggjur af þessu. Guð blessi þig bróðir!
Guðsteinn Haukur Barkarson, 9.5.2007 kl. 23:08
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.