Kjaftagangur á þingi
9.3.2009 | 23:23
Nú er einmitt rétti tíminn til að velta málum vel fyrir sér, helst í marga daga áður en nokkuð verður gert. Það er nákvæmlega það sem þjóðin hefur verið að kalla eftir. Að þingmenn tali og tali þar til þeir verða rauðir í framan. Það á alveg örugglega eftir að redda fólki í erfiðleikum.
Ég hef aldrei verið hrifin af fólki sem talar í löngu máli það sem hægt er að segja í stuttu máli, gildir einu hvort viðkomandi er vinstri grænn eða sjálfstæðismaður. Það er þingheimi til minnkunar að beita málþófi eða óþarfa málalengingum þegar þjóðin er á barmi gjaldþrots. Og til að bíta höfuðið af skömminni þá eyða menn löngum tíma í að rífast um það hvort einhver tali mikið eða lítið.
Kannski er hér enn eitt dæmið um þá gjá sem myndast hefur milli þjóðar og þings.
Saka sjálfstæðismenn um málþóf | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Sjálfstæðisflokkurinn hefur ekki enn skammast sín og beðið okkur afsökunar á bankahruninu. Að þeirra stefna hafi beðið skipbrot .
Núna reyna þeir að eyðileggja enn þá meira fyrir okkur !
Þetta er allt í boði sjálfstæðisflokksins !
JR (IP-tala skráð) 9.3.2009 kl. 23:48
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.